Eins og flestir vita fékk Menntaskólinn á Egilsstöðum tölvert af eigum Alþýðuskólans á Eiðum við lok skólahalds á Eiðum 1998. Þar á meðal var íslenski fáninn á útskornum fæti eftir hjónin á Miðhúsum og Eiðafáni á bláum grunni með emmunum þremur saumuðum á. Báðir þessir gripir voru endurgerðir eftir brunann á Eiðum 1960 er þeir brunnu inni ásamt ýmsum öðrum munum. Fánarnir voru fengnir að láni á afmælishátíðina í haust og prýddu þeir báðir hátíðarsalinn glæsilega, annar út á gólfi og hinn á vegg hægra megin við sviðið. Eftir hátíðina ákvað stjórn Eiðavina að falast eftir því við ME að eignast aftur Eiðafánann og sendi formaður þvi formlega beiðni til skólanefndar. Erindinu var vel tekið og kunnum við forráðamönnum ME bestu þakkir fyrir. Fáninn prýðir því að nýju veggi Eiðaskóla.
Stjórn Eiðavina sendir öllum Eiðavinum innilegar óskir um gleðileg jól og gott nýtt ár og þakkar ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Við viljum þó sérstaklega þakka þeim sem lögðu leið sína á afmælishátíðina á Eiðum í haust og gerðu hana að þeirri eftirminnilegu gleðihátíð sem hún varð. Stjórnin vonast til að sjá sem flesta Eiðavini á Eiðagleði 2014 sem stefnt er á að halda 13.-14. sept. n.k. og verður kynnt nánar á heimasíðum Eiðavina þegar líður á veturinn.
Áfram Eiðar!
1. Heimildamynd um Eiðagleði.
Viðtöl og glefsur úr viðburðum helgarinnar.
Um 90 mín. diskur kr. 3000
2. Hátíðardagskrá og Poppmessa.
Um 60 mín. diskur kr. 2000
3. Tónleikarnir.
Valin 2-3 lög frá hverri hljómsveit á
laugardagstónleikunum.
Um 4 klst á 2 diskum kr. 4000.
5. Allur pakkinn (nr.1,2 og 3) kr. 8000.
Pantanir berist á Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti. Þú þarft að virkja Javascript til að sjá það. eða gsm 861-6910 Bryndís
Stjórn Eiðavina fól Tókatækni að gera heimildamynd um Eiðagleði og hér má sja myndbrot af því sem kemur úr vinnslu frá þeim í nóv. n.k.
Á Eiðagleði, afmælishátíðinni sem haldin var í sept. s.l. lenti formaður Eiðavina í skemmtilegum samræðum við Stebba stjóra (Stefán Þórarinsson) um þær hugmyndir og manngildi sem liggja á bak við ,,emmin þrjú", en faðir hans Þórarinn Þórarnsson f.v. skólastjóri hannaði merkið. Stefán tók vel í þá ósk formanns að hann skrifaði smá grein fyrir Eiðavini um tilurð Eiðamerkisins, en Stefán man eftir föður sínum í djúpum pælingum við hönnuna, bæði hvað varðar inntak og útlit. Hafi Stefán þökk fyrir þetta skemmtilega innlegg hér að neðan. Bryndís Skúla, form. Eiðavina.
Emmin þrjú
Merki Eiðaskóla, tilurð og táknmál.
Upphaf skólastarfs á Eiðum má rekja allt aftur til ársins 1883. Sjötíu og fimm árum síðar, eða árið 1958, vildu stjórnendur skólans minnast þeirra tímamóta. Var það gert með margvíslegum hætti, meðal annars veglegri Eiðahátíð 9. og 10. ágúst það ár. Þetta rekur Ármann Halldórsson í bók sinni, Alþýðuskólinn á Eiðum, sem kom út árið 1983 á hundruðustu ártíð skólans.
Þar segir m.a.: ,, Enn er þess að geta í sambandi við hátíðarhöldin að gert var merki og valið kjörorð fyrir skólann. Hvort tveggja var eftir Þórarin (Þórarinsson) skólastjóra.’’
Þetta vor varð ég 11 ára og man að þróunartími þessa merkis var alllangur, bæði leit að einkunnarorðum og eins að formi merkisins. Rámar mig í ýmsar skissur sem faðir minn gerði eftir að einkunnarorðin höfðu verið valin áður en merkið tók á sig endanlegt form.
Merkið er hringlaga með þrjú hvít M á bláum grunni, lit hreinleikans, sem stækka hvert upp af öðru. Einkunnarorðin og form merkisins hafa skýra merkingu sem rétt er að varðveita því þau eru þrungin merkingu sem föður mínum var mjög í mun að halda á lofti til að skólastarfið mótaðist í þeim anda og að Eiðamenn hefðu inntak merkisins í heiðri hvar sem leið þeirra lá.
Í bréfi okkar systkina og mömmu, Sigrúnar I. Sigurþórsdóttur, til Menntaskólans á Egilsstöðum í október 1995, þar sem skólanum er heimiluð notkun merkisins sem arftaka Alþýðuskólans á Eiðum og Ragnheiður Helga systir skráði, stendur m.a. um merkið: ,,Kjörorðið er: manntak – mannvit – manngöfgi. Merkið er tákn fyrir þetta kjörorð: Þrjú hvít M á bláum grunni. Með orðunum manntak – mannvit – manngöfgi vildi skólamaðurinn og uppalandinn undirstrika að öll mannanna verk og aukin þekking eru lítils virði ef siðgæðisvitund og göfuglyndi skortir. Allt verður þetta að fylgjast að.’’
Af þeim sökum er emmið sem táknar manngöfgina stærra hinum og stendur efst. Hið hringlaga form merkisins táknar einingu þessara mannkosta sem eiga að vera aðall allra Eiðamanna. Það er á þennan hátt sem við minnumst túlkunar föður okkar á Eiðamerkinu sem Eiðavinir hafa nú gætt lífi að nýju.
Stefán Þórarinsson.
Þórarinn Þórarinsson
skólastjóri 1938-1965.
Ort í tilefni Eiðagleði
Eins og ég man það
Í lífstrénu eru sumar greinarnar grænni en aðrar
og sums staðar hellist gróskan yfir eins og hlýtt teppi
hér fæddust allar sterkustu tilfinningarnar mínar
og hérna urðu þær eftir
heitasta ástin
mest hjartanístandi sorgin
albestu vinirnir
þannig man ég það
Vinátta
Að austan og vestan
norðan og sunnan
og öllum þeim áttum öðrum
sem ógna stundum og meiða
við fagnandi förum í Eiða