Vinátta
Að austan og vestan
norðan og sunnan
og öllum þeim áttum öðrum
sem ógna stundum og meiða
við fagnandi förum í Eiða
Að utan, ofan og innan
eða beint úr neðra
í slóð vorra feðra
á höfuðleið allra leiða til Eiða
Að koma, vera
og fara
hryggjast, gleðjast
heilsast og kveðjast
angandi blómabreiða
blikandi skín við Eiða
Eldur er bestur og sólarsýn
heillyndi án við löst að lifa
alefling andans,
athöfn þörf af sér gott láta leiða
úr vandamálum má greiða
með því að líta til Eiða
Það birtir
Það birtir senn
öll við erum Eiðamenn!
Eiðagleði 20. - 22. sept 2013 – Þorkell.St.Ellertsson