Lög Eiðavina frá 2013.
LÖG EIÐAVINA SAMÞYKKT 15. JÚNÍ 2013
1. grein
Félagið heitir Eiðavinir. Kjörorð félagsins eru: Manntak – mannvit – manngöfgi.
Heimili félagsins og varnarþing er á Eiðum. Allir fyrrum nemendur og starfsfólk Alþýðuskólans á Eiðum skoðast sjálfkrafa félagar. Félagið er jafnframt opið öllum þeim sem láta sig varða veg og virðingu Eiðastaðar.
2. grein
Markmið félagsins eru:
- Að styðja við þá starfsemi að Eiðum sem eflir menningar- og athafnalíf á Austurlandi
- Að hefja til vegs og virðingar sögu staðarins sem menntaseturs á Austurlandi
- Að efla tengsl og samstarf Eiðavina
Að þessu markmiði hyggjast samtökin m.a. vinna með eftirfarandi ráðum:
- Að varðveita skrá yfir alla Eiðavini, þ.e. nemendur, kennara og annað starfslið Alþýðuskólans á Eiðum.
- Að koma fréttum og upplýsingum á framfæri við félagsmenn með árangursríkum leiðum s.s. á fésbókarsíðu Eiðavina og í tölvupósti. Einnig er send Eiðakveðja 1x á ári í pósti til þeirra sem eru ekki í tölvusamskiptum
- Að beita sér fyrir nemendamótum á Eiðum
- Að efla fræðslu um sögu, menningu og náttúrufar staðarins
- Að stuðla að fegrun umhverfis og varðveislu sögulegra minja á staðnum
- Efla Sögustofuna á Eiðum enn frekar með útvíkkun hennar um skólahúsnæðið í samstarfi við eigendur Eiða
- Að stuðla að fjölbreyttum menningarviðburðum á Eiðum
- Að eiga gott samstarf við eigendur Eiðastaðar
3. grein
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda á Eiðum að sumarlagi ár hvert. Skal hann auglýstur með minnst 10 daga fyrirvara. Allir Eiðavinir hafa á aðalfundi málfrelsi, tillögurétt, atkvæðisrétt og kjörgengi. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Stjórn fjármagnar starfsemi félagsins með frjálsum framlögum, styrkjum og fjáröflunum. Fjárhagsár félagsins er almanaksárið. Félagsfundi skal halda eftir ástæðum og til þeirra boðað á sama hátt og aðalfundar.
4. grein
Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi. Kjósa skal fimm aðalmenn og tvo varamenn. Formaður skal kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum. Á aðalfundi skal einnig kosinn skoðunarmaður reikninga og annar til vara.
5. grein
Stjórn félagsins stýrir málefnum þeirra milli aðalfunda og er málsvari þess. Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir og boðar formaður bæði aðalmenn og varamenn til þeirra.
6. grein
Félagið verður aðeins lagt niður með 2/3 hlutum greiddra atkvæða á lögmætum aðalfundi og skal eignum þess þá ráðstafað í samræmi við markmið félagsins.
7. grein
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi og þarf til þess 2/3 hluta greiddra atkvæða.
LÖG EIÐAVINA